Endurreisnin kallar á eðlilega samkeppni

Svohlóðandi Þingsályktuartillögu lagði ég fram í á þinginu í gær. "Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni heildarendurskoðun á samkeppnisumhverfi íslenskra fyrirtækja".

Greinargerðin sem fylgdi með er eftirfarandi:

Í kjölfar bankahrunsins er mikilvægt að hefja strax endurreisn á íslensku viðskipta- ogefnahagslífi. Til að það sé mögulegt á sem stystum tíma verður að ríkja öflug samkeppni hérá landi. Því miður er mikil hætta á að ríkjandi ástand ýti undir samþjöppun og hún verði ennmeiri en við höfum upplifað á undanförnum árum. Slíkt getur dregið mjög úr hraða endurreisnarinna þar sem frumkvæði og framtakssemi þjóðarinnar nær ekki fullum skriðþunga.

Í skýrslu Samkeppniseftirlitsins nr. 2/2008,
Öflug uppbygging – opnun markaða og eflingatvinnustarfsemi er greint frá reynslu annarra ríkja af þýðingu samkeppni í efnahagskreppum og hvaða lærdóm megi draga af henni. Sú reynsla og rannsóknir í hagfræði sýna að aðgerðir til þess að viðhalda og efla samkeppni stuðla að hraðari endurreisn atvinnulífsins.

Nú þegar við stöndum frammi fyrir miklum efnahagserfiðleikum í kjölfar bankahrunsinshefur aldrei verið mikilvægara að horfa til framtíðar og undirbúa næstu skref til viðreisnar íslensku efnahagslífi. Ljóst er að samkeppnisumhverfi íslenskra fyrirtækja er gallað. Hringamyndunog krosseignarhald hefur fengið að þrífast hér á landi, fákeppni hefur blómstrað ogfyrirtæki hafa misbeitt markaðsráðandi stöðu sinni um áraraðir. Þetta sést glöggt þegar horfter til smásöluverslunar, matvöruiðnaðarins, fjölmiðla- og fjarskiptamarkaðarins, samgöngufyrirtækjaog lyfjamarkaðarins svo eitthvað sé nefnt.

Íslenskt þjóðfélag má engan tíma missa. Krónan hefur fallið mjög hratt og hafa verðhækkanirekki látið á sér standa eðli málsins samkvæmt. Nauðsynlegt er að þær gangi með sama hraða til baka í styrkingarferli krónunnar. Ef fákeppni eða samkeppnisskortur ríkir á markaðnum mun myndast mikil tregða til verðlækkana eins og sagan og dæmin hafa sýnt okkur. Við slíku ástandi verður að sporna og má ljóst vera að forsenda þess er öflugri samkeppnismarkaður.

Mörg úrræði eru til að efla samkeppni innan núverandi löggjafar. Önnur kalla á að reglu- oglagaumgjörð fyrirtækjanna eða samkeppnismarkaða sé breytt og úrræði Samkeppniseftirlitsinsefld. Sérstaklega mikla áherslu þarf að leggja á að hlúa að og bæta rekstrarumhverfilítilla og meðalstórra fyrirtækja, m.a. með því að ryðja úr vegi hindrunum sem takmarka möguleika nýrra fyrirtækja til að komast inn á samkeppnismarkaði (aðgangshindranir), eða möguleika smærri fyrirtækja til að vaxa við hlið stærri fyrirtækja, sbr. m.a. fyrrgreindaskýrslu Samkeppniseftirlitsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott mál Ármann!

Síðan þurfum við öfluga skattalöggjöf.

sandkassi (IP-tala skráð) 21.12.2008 kl. 23:04

2 Smámynd: Þórir Kjartansson

Það er gott, Ármann ef það eru að renna upp fyrir ykkur þau sannindi að lítil og meðalstór fyrirtæki eigi rétt á sér. Undanfarin ár hefur verið ofurtrú á ,,hagræðingu" og   ,,hagkvæmni stærðarinnar".  Eftir þessum trúarbrögðum hefur ekki síst verið unnið af hálfu Sjálfstæðisflokksins. En batnandi mönnum er best að lifa.

Þórir Kjartansson, 22.12.2008 kl. 13:21

3 Smámynd: Héðinn Björnsson

Ríkið á í raun öll fyrirtæki landsins í gegnum möguleika ríkisbankanna til að taka þau til gjaldþrotaskifta. Ef ríkið vill auka samkeppni er skilvirkast að taka Baug og aðrar stórverslanir til gjaldþrotaskifta og skifta þeim upp í minni fyrirtæki. Það krefst hinsvegar að þið takið völdin í bönkunum af útrásarvíkingunum sem enn virðast ráða þar öllu.

Héðinn Björnsson, 22.12.2008 kl. 14:24

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband